Hverfisgata 86

Hverfisgata 86 komin í sölu

Endurbótum við húsið að Hverfisgötu 86 er lokið og er það komið í sölu. Í húsinu eru þrjár íbúðir, á jarðhæð, miðhæð og í risi.

Óhætt er að segja að engu hafi verið til sparað við endurbætur á húsinu en þær voru unnar í samvinnu við Minjastofnun og borgaryfirvöld. Hverfisgata 86 er hluti af fallegri húsaþyrpingu eldri húsa á svæði sem afmarkast af Laugavegi, Vitastíg, Hverfisgötu og nýrri göngugötu sem verið er að gera milli Hverfisgötu og Laugavegs.

Í nágrenni hússins er unnið við endurbætur fleiri eldri húsa. Þau munu skapa sérstaka og glæsilega þyrpingu sem gengur undir nafninu Vitaþorp hjá byggingaraðila.

Íbúðirnar eru flestar tilbúnar til afhendingar með glæsilegum innréttingum og gólfefnum. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá fasteignasölunum Mikluborg, Eignamiðlun og Landmark.

Ibúð 101

Birt flatarmál m² 60.9
Verð SELD

Ibúð 201

Birt flatarmál m² 65.6
Verð SELD

Ibúð 301

Birt flatarmál m² 64.2
Verð SELD

HAFA SAMBAND

atli@arcticlandmark.is

Sími: 551 7107

Allt myndefni birt með fyrirvara -
byggingarnefndarteikningar gilda

vitaborg_footer_logo

Vefvinnsla og hönnun: ONNO ehf.